prufa

Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu sem varðar skatt

Geir H. Haarde mun ávarpa þjóðina klukkan 16

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun ávarpa þjóðina klukkan 16 í dag og verður ávarpinu útvarpað og sjónvarpað. Alþingi verður kallað saman eftir ávarp Geirs  en ekki stóð til að hafa þingfundi í dag vegna þingflokksfunda, sem voru boðaðir klukkan 15.

Forsaetisradherra og stadgengill utanrikisradherra hittu formenn
stjornarandstoduflokkanna klukkan 13 í dag. Geir mun halda  blaðamannafund í  Alþingishúsinu klukkan sex. Aðrir ráðherrar og fulltrúar stjórnvalda verða þar einnig til svara. 


Lan mótið gekk rosalega vel

Um þrjú hundruð manns tóku þátt  í gríðarstóru lanmóti sem haldið var í Egilshöll um helgina. Það voru töluvert fleiri en í fyrra, Þeir sem stóðu að þessu móti er tölvuverslunin Kísildalur ég verð að segja það að öll umgjörð og skipulagning var til fyrirmyndar og aðstandendur að þessu móti eiga sko stórt hrós skilið frá okkur starfsmönnum í Egilshöll allt sem var lagt upp með stóðst.

Lan mótið Kísildalur Open er þannig mót að keppt er í tölvuleikjunum Counter Strike og Call Of Duty. Það voru tíu lið skráð í Call of Duty, og fjörutíu í Counter Strike, sem er einna vinsælasti leikurinn í dag. Það eru riðlar, milliriðlar og útsláttarkeppni. Sömuleiðis er best of the worst"-keppni. Þau lið sem ekki komust upp úr riðlunum keppa sín á milli .

Sú ímynd vill oft loða við svona tölvuleikjamót af þessum toga að þar séu aðallega á ferðinni unglingsstrákar sem eru sjúkir í tölvuleiki ég veit auðvitað ekkert um það en eitt veit ég að  þetta eru sóma piltar og þeir eru alltaf velkomnir til mín í höllina með Lanmót.


Stutt í tónleika með Whitesnake

Það er örugglega flottir tónleikar framundan því Þann 10 júní 2008 mun hin goðsagnakennda og stórkostlega rokksveit Whitesnake trylla landan á tónleikum í Laugardalshöll.

Whitesnake kom síðast til landsins 1990 og hélt tvenna tónleika í Reiðhöllinni og komust færri að en vildu ég sá sveitina á seinni tónleikunum og ég hef aldrei upplifað annað eins svo mikill var krafturinn í bandinu þá. Frægt er orðið að söngvari sveitarinnar David Coverdale var veikur seinna kvöldið og tók Pétur Kristjánsson heitin þá við kyndlinum og gerði það óaðfinnanlega. Pétur var frábær enda meiriháttar söngvari þar á ferð. Blessuð sé minning hans.

Whitesnake hefur verið á ferðinni síðan 2002 og hafa tónleikar sveitarinnar allstaðar selst upp á mettíma þar sem sveitin hefur komið fram. Það verður örugglega gaman að rifja upp gömlu lögin því Whitesnake menn hafa samið frábær lög


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband